Nýjustu tíðindi

Vélmennið Stefnir léttir undir með starfsfólki á Sléttunni

Nýr tæknivæddur starfsfélagi hefur hafið störf í þjónustumiðstöðinni Sléttunni á Hrafnistu Sléttuvegi. Vélmennið, sem nefnist Stefnir, aðstoðar starfsfólk við að taka leirtau af borðum í matsalnum og flytja það í uppvaskið.

Stefnir ferðast sjálfstætt eftir skilgreindum leiðum og notar skynjara til að greina umhverfi sitt og forðast hindranir. Með tilkomu hans er markmiðið að auka skilvirkni og létta á starfsfólki, svo það hafi meira svigrúm til að sinna íbúum og gestum.

Reynslan hefur verið jákvæð og Stefnir hefur vakið mikla athygli og forvitni á Sléttunni. Hann er gott dæmi um hvernig nýsköpun og tæknilausnir geta orðið verðmætur liðsauki í daglegu starfi.

Fleiri tíðindi