Um DAS íbúðir
DAS íbúðir, áður Naustavör, er óhagnaðardrifið leigufélag sem var stofnað árið 2001 í þeim tilgangi að byggja, og bjóða upp á sérútbúið húsnæði, með aðgengi að þjónustu og afþreyingu sem hentar sérstaklega vel fólki frá 60 ára aldri. Myndi félagið hagnað er honum varið í frekari uppbyggingu á aðstöðu og þjónustu en arður er ekki greiddur til eigenda.
DAS íbúðir eru í eigu Sjómannadagsráðs og er eitt af helstu hlutverkum Sjómannadagsráðs að vera leiðandi í öldrunarþjónustu á landinu.
Hjúkrunarheimili Hrafnistu eru einnig í eigu Sjómannadagsráðs og er gott samstarf á milli DAS íbúða og Hrafnistu, enda eru allar leiguíbúðirnar í næsta nágrenni við Hrafnistuheimilin. Gott aðgengi er innanhúss á milli íbúðanna og hjúkrunarheimilanna.
Ein stærsta fjáröflunarleið Sjómannadagsráðs er Happdrætti DAS og hefur það fjármagn gert Sjómannadagsráði kleift að byggja upp fjóra lífsgæðakjarna. Lífsgæðakjarni nær yfir bæði húsnæði og þjónustu þar sem fólki gefst kostur á að auka lífsgæði sín og njóta þess að vera til. Með virku samstarfi þeirra sem þar starfa og þangað sækja verður til kjarni sem leiðir af sér góðar stundir með góðu fólki.
Við leggjum áherslu á öruggt og áreiðanlegt húsnæði sem sniðið er að þörfum þeirra sem dregið hafa úr eða látið af störfum og viljum stuðla að því að íbúar DAS íbúða njóti aukinna lífgæða á efri árum.
Allt húsnæðið styður við sjálfstæða búsetu, veitir greiðara aðgengi að afþreyingu, tómstundum og fjölbreyttri þjónustu í öruggu umhverfi á efri árum. Með því trúum við að hver og einn getið haldið sjálfstæði svo lengi sem kostur er, samhliða úrræðum sem í boði eru hjá félagsþjónustu sveitarfélaganna og heilbrigðisþjónustu opinberra aðila.
Okkar gildi eru öryggi, afþreying og þjónusta með hagsmuni leigjenda að leiðarljósi.
Staðsetning lífsgæðakjarna
Hér má sjá staðsetningu lífsgæðakjarna Sjómannadagsráðs á höfuðborgarsvæðinu.

Saga DAS íbúða
2001 Naustavör stofnað af Sjómannadagsráði.
2004 64 leiguíbúðir teknar í notkun við Hraunvang í Hafnarfirði.
2007 24 leiguíbúðir teknar í notkun við Brúnaveg í Reykjavík.
2010 – 2012 95 leiguíbúðir teknar í notkun við Boðaþing í Kópavogi.
2014 18 leiguíbúðir teknar í notkun við Jökulgrunn í Reykjavík.
2020 60 leiguíbúðir teknar í notkun á Sléttuvegi í Reykjavík.
2024 87 leiguíbúðir teknar í notkun við Skógarveg í Reykjavík.
2025 Naustavör verður DAS íbúðir.
Stjórn DAS íbúða
Stjórn Naustavarar ehf. skipa:
Aríel Pétursson, formaður
Jónas Garðarsson
Oddur Magnússon
Nánari upplýsingar um íbúðirnar má finna með því að hafa samband við skrifstofu DAS íbúða í síma 585-9300 og dasibudir@dasibudir.is. Aldís Einarsdóttir er þjónustustjóri, Rebakka Júlía Magnúsdóttir er verkefnastjóri og framkvæmdastjóri er Þröstur Söring.