Nýjustu tíðindi

Endurbætt endurhæfingardeild Hrafnistu í Laugarási opnuð

Endurbættur og glæsilegur tækjasalur endurhæfingardeildar Hrafnistu í Laugarási var formlega opnaður í júní. Ný aðstaða og ný finnsk HUR-tæki frá Fastus skapa enn betri aðstæður fyrir einstaklingsmiðaða endurhæfingu og gera starfsfólki kleift að fylgjast betur með framförum og árangri.

Við opnunina var nýtt nafn tækjasalarins einnig kynnt. Um 100 tillögur bárust í nafnasamkeppni meðal íbúa og starfsfólks og varð nafnið Slippurinn fyrir valinu.

Gígja Þórðardóttir, deildarstjóri endurhæfingardeildar, og Aríel Pétursson, formaður Sjómannadagsráðs, fluttu erindi við athöfnina. Séra Daníel Ágúst Gautason vígði salinn og blessaði starfsemina.

Opnunin markar mikilvægt skref í áframhaldandi þróun og eflingu endurhæfingarþjónustu á Hrafnistu í Laugarási.

Fleiri tíðindi